Frítt á tjaldsvæðið að Hömrum um helgina

Tjaldsvæðið að Hömrum.
Tjaldsvæðið að Hömrum.

Í tilefni af 100 ára skátastarfi á Akureyri býður Skátafélagið Klakkur, Akureyringum og landsmönnum öllum í útilegu að Hömrum um helgina, dagana 18.-20. ágúst. Tilvalið tækifæri fyrir alla að nota útilegugræjurnar a.m.k. einu sinni enn fyrir veturinn. Í boði eru frí tjaldsvæði og skemmtileg dagskrá á einu vinsælasta tjaldsvæði landsins, segir í tilkynningu.

Tjaldsvæðið opnar kl. 16:00 í dag, föstudag og verður fjölbreytt fjölskyldudagskrá í boði frá föstudagskvöldi til hádegis á sunnudag. Nánari upplýsingar er að finna á heimsaíðu skátafélagsins www.klakkur.is

 

Nýjast