Friðarganga á Þorláksmessu

Friðarframtak Akureyri stendur fyrir árlegri friðargöngu á Þorláksmessu. Gengið verður frá Samkomuhúsinu kl. 20:00 út á Ráðhústorg. Ávarp flytur Pétur Pétursson læknir og Sigríður Íva Þórarinsdóttir syngur. „Vopnaskakið verður háværara ár frá ári. Undanfarið hafa hörmungar Aleppo bulið á okkur, mengaðar miklum áróðri. Í Miðausturlöndum tekur ein styrjöldin við af annarri alla þessa öld: Afganistan, Írak, Palestína, Líbía, Sýrland og fjöldi flóttamanna vex samkvæmt því. Fjölmiðlar kalla þetta trúarátök eða “stríð gegn hryðjuverkum” en í reynd eru þetta átök stórvelda um yfirráðin í þessum heimshluta. Bandaríkin hafa eytt nálægt 6000 milljörðum dollara í þessi stríð undanfarna tvo áratugi og gömlu nýlenduveldi Evrópu standa þeim þétt að baki. Ísland styður.  Þeir sem hafa fengið nóg af þessari stríðsgöngu ættu að mæta í friðargöngu á Þorláksmessukvöld,“ segir í tilkynningu.  

Nýjast