20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Fræðslustund um álegg á Amtinu
Kristín Aðalsteinsdóttir fjallaði um álegg á fræðslustund sem efnt var til á Amtsbókasafninu. Hún er iðin við brauðbakstur og býður gestum sínum ævinlega upp á þrjú ólík en ljúffeng heimagerð álegg með brauði sínu. Það er að hennar sögn sívinsælt.
„Mér finnst ég vera að gefa ykkur hjartað í mér,“ sagði hún við gesti sem hlýddu á hana ræða áleggjagerð. Gaf hún viðstöddum nokkrar af sínum uppáhaldsuppskriftum. Stundin var vel lukkuð og áhugaverð og stefnt er að því að halda áfram að bjóða upp á alls kyns jafningjafræðslur í salarkynnum Amtsbókasafnsins um ólík málefni á næstunni.
Eftir fræðsluna litu gestir við í samfélagsgarði bak við safnið og einhverjir tóku með sér timjan, sellerí eða annað sem þar vext í góðu skjóli til að nota ýmist í áleggjagerð eða kvöldmatinn.
Gestir litu að loknu fræðsluerindi á samfélagsgarðinni við Amtsbókasafnið og höfuð margir með sér eitthvað heim.