Finnsk menning í Hofi
Menningarfélag Akureyrar býður til finnskrar viku í Hofi dagana 16. – 22. október. Tilefnið er aldarafmæli finnska lýðveldisins og því verður finnsk menning í hávegum höfð. Í tilkynningu segir að að spennandi vika sé framundan í Hofi þar sem Menningarfélag Akureyrar hefur sett saman áhugaverða dagskrá tileinkuð aldarafmæli finnska lýðveldisins í samstarfi við ólíka aðila sem allir vilja halda uppi merkjum finnskrar menningar af þessu tilefni.
Upplestur velkunnra Akureyringa mun gleðja hádegisverðargesti veitingastaðarins 1862 Nordic Bistro frá mánudegi til föstudags. Þar munu meðal annars Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri, Pia Viinikka bókasafnsfræðingur og Saga Geirdal Jónsdóttir lesa úr velkunnum bókum eftir finnska höfunda. Um miðja viku, nánar tiltekið á miðvikudaginn kl. 17.30, verður bíóstemning í Hofi í samstarfi við finnska sendiráðið og valdar myndir sýndar. Tónlistarmaðurinn Matti Kallieo spilar finnska tónlist fyrir matargesti Nönnu á föstudagskvöldið sem njóta munu finnskrar matargerðar og Harmonikkufélag Eyjafjarðar verður með tangóskotið ball í Hömrum. Menningarfélag Akureyrar ásamt Norræna félaginu býður til BAR SVARS föstudagskvöld kl. 19.30 á R5 við Ráðhústorg. Þar geta áhugasamir gestir og spurningakeppnisunnendur spreytt sig á þematengdum spurningum um Finnland.
Að morgni laugardags, kl. 11, verður sögu- og föndurstund fyrir börnin í samvinnu við Amtsbókasafnið en hápunktur finnsku þemavikunnar eru stórtónleikarnir FINLANDIA og FRÓN. Þar stjórnar hinn finnski Petri Sakari flutningi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á verkum Síbelíusar og Áskels Mássonar. Á tónleikadaginn sjálfan, sunnudaginn 22. október kl. 15, mun finnski sendiherrann Valtteri Hirvonen fjalla um sögu lýðræðisbaráttunnar og tengsl hennar við verk Sibeliusar í tilefni af aldarafmæli þess. Sérstakur gestur verður Matti Kallio tónlistarmaður.