„Eyjafjörður er alltaf gott myndefni“
Togarinn Björg EA 7 hélt til veiða síðdegis í gær eftir að hafa landað góðum afla á Akureyri. Guðmundur Freyr Guðmundsson hefur verið skipstjóri á Björgu frá því skipið kom nýtt til landsins fyrir sex árum síðan. Hann er oftar en ekki með myndavél í brúnni og grípur til hennar þegar honum þykir ástæða til. Eyjafjörður skartaði sínu fegursta í haustblíðunni í gær, Guðmundur Freyr stóðst ekki mátið og náði í myndavélina góðu.
„Eyjafjörður er alltaf gott myndefni, hvort sem maður er að hefja sjóferð eða enda. Veðrið í gær var frábært og útsýnið stórkostlegt. Mér finnst gaman að taka myndir, mætti sjálfsagt vera duglegri en í gær var ekki annað hægt en að bæta nokkrum myndum í albúmið.“
Hér fyrir neðan getur að líta nokkrar þeirra mynda sem Guðmundur Freyr tók á útstíminu í gær og þakkar heimasíðan honum fyrir sendinguna.
Það er heimasíða Samherja sem fyrst bauð upp á þessa glæsilegu myndir.