20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Djákninn á Myrká-Aukasýning um helgina
„Þar sem hryllilega gamanverkið Djákninn á Myrká – Sagan sem aldrei var sögð fékk framúrskarandi viðbrögð verður einni aukasýningu bætt við um helgina,“ segir á heimasíðu Menningarfélags Akureyrar. Sýningum á leikritinu átti að ljúka um síðustu helgi en aukasýningin fer fram í Samkomuhúsinu laugardaginn kemur þann 1. júní klukkan 20.
Djákninn á Myrká – Sagan sem aldrei var sögð byggir á einni þekktustu draugasögu Íslandssögunnar. Í leikverkinu er sagan skoðuð frá ýmsum sjónarhornum, lesið á milli línanna og skáldað í eyðurnar. Leikstjóri er Agnes Wild, um leikmynd- og búninga sér Eva Björg Harðardóttir, tónlistin er í höndum Sigrúnar Harðardóttur en leikarar eru Jóhann Axel og Birna Pétursdóttir.
Sýningin er samstarfsverkefni leikhópsins Miðnættis og Leikfélags Akureyrar.