Chia grautur fyrir mömmur á hraðferð .
Elísa A. Ólafsdóttir heiti ég og er iðju- þjálfi á Öldrunarheimilinu Hlíð á Akureyri.
Ég er gift honum Þórði mínum og á þrjú börn. Maðurinn minn er á sjó og því eru næg verkefni sem þarf að sinna. Ég hef gaman af því að gera tilraunir í eldhúsinu við misjafnar undirtektir heimilisfólksins. Ég ákvað að deila með ykkur uppskriftinni minni af chia graut sem ég tek alltaf með mér í vinnuna á morgnana. Einnig býð ég upp á hrökkbrauð og hummus sem er fínt saman. Sem sagt hollar, einfaldar og góðar uppskriftir sem allir geta framkvæmt.
Morgunmatur í krukku (algjör snilld fyrir mömmur á hraðferð)
1 dl ab mjólk
1-2 dl kókósmjólk (úr fernu)
1½ msk. chia fræ
1 msk. Haframjöl
Aðferð:
Þetta hrært vel saman. Bætt út í berjum að eigin vali, ég nota bláber og hindber. Geri þetta á kvöldin og geymi í ísskáp, hollur og góður morgunmatur.
Hrökkbrauð
3,5-4 dl fimmkornablanda
1,5-2 dl haframjöl
3,5 dl hveiti eða heilhveiti
1 dl olía
2 dl vatn
1 msk. síróp eða hrásykur
smá salt
Aðferð:
Öllu blandað saman, skipt í þrennt og sett á 3 plötur (þunnt lag), bakað í 20- 25 mín. á 180°.
Hummus
1 krukka kjúklingabaunir (nota hluta af vatninu)
½ rautt chili
1-2 hvítlauksgeirar
smá sítrónusafi 2-3 sólþurrkaðir tómatar og smá sletta af olíunni.
smá salt
Aðferð:
Allt maukað með töfrasprota, geymist í ísskáp.
Ég skora á samstarfskonu mína Höllu Stefánsdóttur að koma með næstu uppskriftir í Matarkrókinn.