20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Bókmenntahátíð í fyrsta sinn á Akureyri
Bókmenntahátíð verður haldin í fyrsta sinn á Akureyri þriðjudaginn 5. september í Menningarhúsinu Hofi. Dagskrá hennar er unnin í samstarfi Menningarfélags Akureyrar og Amtsbókasafnsins á Akureyri við Bókmenntahátíðina í Reykjavík. Boðið verður uppá tvo viðburði þennan dag með þátttöku rithöfundanna Anne-Cathrine Riebnitzsky og Esmeralda Santiago. Höfundamót – höfundar, sögupersónur, lesendur er fyrri viðburðurinn af tveimur þennan dag sem áhugasömum gestum og bókaunnendum er boðið uppá kl. 11.30-13.00.
Rithöfundarnir Anne-Cathrine Riebnitzsky (Stormurinn og stillan) og Esmeralda Santiago (Næstum fullorðin) lesa uppúr verkum sínum. Tveir félagar úr akureyrskum bókaklúbbi segja frá sinni upplifun á lestri bókanna og vangaveltum sem urðu til við lesturinn og hafa tækifæri til að spyrja höfundana beint út í verkin. Áheyrendum út í sal gefst einnig kostur á að spyrja spurninga og taka þátt í umræðunum. Viðburðurinn fer fram á ensku og íslensku.
Maður á mann er seinni viðburður hátíðarinnar og hefst kl. 17. Þar fara þau Arnar Már Arngrímsson rithöfundur og Esemeralda Santiago á trúnó, en rauði þráðurinn í því eru konur, sjálfsmynd og flutningar. Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður fer á trúnó við Anne- Cathrine Riebnitzsky þar sem aðalumræðuefnið verður konur og stríð ásamt fjölskyldum í skáldskap.
Auk þess munu þau Margrét H. Blöndal, Þórgunnur Oddsdóttir, Kristín Þóra Kjartansdóttir, Megas og Hlynur Hallsson lesa uppúr nýútgefnum verkum sínum úr ritröðinni Pastel. Ávarp flytja þær Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar og Stella Soffía Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík. Viðburðurinn fer fram á ensku en upplestur höfunda Pastels er á íslensku.