Birtuskil Ragnars í Deiglunni

„Stundum hefur mér fundist eins og Íslendingar líti á vatnsliti sem eitthvert dúllerí en þeir eru þegar öllu er á botninn hvolft erfiðasti miðillinn
þegar fengist er við málverk,“ segir Ragnar Hólm Ragnarsson sem í dag, laugardaginn 18. nóvember opnar einkasýningu á nýjum vatnslitamyndum og fáeinum olíumálverkum. Sýningin er í Deiglunni og verður opnuð kl. 14.

Ragnar kveðst einkum glíma við impressjóníska túlkun á landslagi í myndum sínum og reyna að fanga hina íslensku birtu, samspil ljóss og skugga,
innrammaða í form náttúrunnar. Síð­asta árið hafa ákveðin vatnaskil orðið í myndlist Ragnars, „það hefur eitthvað breyst og ef til vill eru að koma betur og betur í ljós áhrifin frá hinni norrænu vatnslitahefð, sem er ansi kraftmikil og á sér djúpar rætur í norrænni menningu,“ segir hann.

Vatnslitir njóti meiri virðingar á hinum Norðurlöndunum og raunar í Evrópu en þeir gera hér heima.
Sýningin er opin frá kl. 14­-17 í dag og á morgun, sunnudaginn 19. nóvember. Aðeins þessi eina sýningarhelgi.

Nýjast