Birkir Blær heldur tónleika í Hofi
Norðlenski tónlistarmaðurinn Birkir Blær heldur tónleika í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, föstudagskvöldið 18. júní. Á tónleikunum mun Birkir Blær syngja frumsamið efni af nýútgefinni plötu ásamt óútgefnu efni og vel völdum ábreiðum.
Birkir er vanur að koma fram einn með græjurnar sínar en í þetta sinn hefur hann með sér einvala lið hljóðfæraleikara, þar á meðal Eyþór Inga Jónsson sem spilar á píanó og Hrein Orra Óðinsson sem sér um synth, tölvuhljóð og söng.
Tónleikarnir fara fram í svarta kassanum í Hamraborg. Miðasala er á mak.is. Tónleikarnir eru hluti af Listviðburðaröð VERÐANDI í tilefni af 10+1 árs afmæli Menningarhússins Hofs.