20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Anna Kristjana er Ungskáld Akureyrar
Úrslit í ritlistarsamkeppninni Ungskáld 2018 var kunngerð við hátíðlega athöfn á Amtsbókasafninu á dögunum. Ungu fólki á aldrinum 16-25 ára á Eyþingssvæðinu gafst kostur á að senda inn texta í keppnina og hlutu þrjú bestu verkin peningarverðlaun.
Niðurstaða dómnefndar var eftirfarandi: Þriðja besta verkið var valið "Dagur á veginum" eftir Söndru Marín Kristínardóttur, í öðru sæti var "Tækifærin" eftir Önnu Kristjönu Helgadóttir og svo skemmtilega vildi til að ljóðið "Án titils" var valið í fyrsta sæti en það var einnig eftir Önnu Kristjönu.
Í dómnefndinni sátu Hrönn Björgvinsdóttir bókavörður á Amtsbókasafninu, Kristín Árnadóttir fyrrverandi íslenskukennari við VMA og Þórarinn Torfason bókmenntafræðingur og kennari við Oddeyrarskóla.
Alls bárust 82 verk í keppnina sem er tvöfalt meira en í fyrra. Engar hömlur voru settar á hvers kyns textum væri skilað inn, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurftu þó að vera á íslensku. Ungskáld er verkefni á Akureyri sem miðar að því að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára.
Verkefnið er hið eina sinnar tegundar á landinu. Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Akureyrarstofu, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtsbókasafninu.Verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.