20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
AmabAdamA og Anna Mjöll á Græna hattinum
Reggísveitin AmabAdamA heldur tónleika Græna hattinum í kvöld, föstudaginn 30. júní. Sveitin gaf nýlega út smellinn „Geng´á eftir þér“ fyrir sýningu Borgarleikhúsins Út að aka, en lagið hefur verið eitt það vinsælasta á Íslandi síðustu vikur.
„Von er á fullt af nýju efni frá sveitinni á komandi mánuðum og má því gera ráð fyrir stóru sólskins-reggí-sumri,“ segir í tilkynningu en tónleikarnir hefjast kl. 22.00.
Meira en tvö ár er liðin síðan djasssöngkonan Anna Mjöll hélt eftirminnilega tónleika á Græna hattinum. Þeir sem misstu af henni þá geta tekið gleði sína á ný þar sem hún ætlar að endurtaka leikinn á laugardagskvöldið kemur þann 1. júlí. Á dagskránni eru lög sem eru þekkt í flutningi Ellu Fitzgerald, Astrud Gilberto, Söru Vaughan, Billie Holiday, Marlyn Monroe ofl.
Hljómsveitina skipa þeir Ludvig Kári Forberg, píanó, vibrafónn, Stefán Ingólfsson, bassi, Rodrigo Lopez, trommur, Kristján Edelstein, gítar. Sérstakur gestur verður Svanhildur Jakobsdóttir. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00