Akureyri Gjaldskrá endurskoðuð

Bæjarskrifstofurnar     Mynd gn
Bæjarskrifstofurnar Mynd gn

Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í morgun að endurskoða þá hluta  gjaldskrár bæjarins sem snerta viðkvæma hópa og barnafjölskyldur.

,,Þrátt fyrir að skiptar skoðanir séu á því fyrirkomulagi sem lagt var til grundvallar aðkomu hins opinbera að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, þá er ljóst að niðurstaða um langtímasamninga hefur náðst og markmið þeirra um að stuðla að minnkun verðbólgu, lækkunar vaxta sem og að auka kaupmátt heimila í landinu er mikilvæg.

Akureyrarbær mun því í samræmi við áskorun Sambands íslenskra sveitarfélaga endurskoða gjaldskrárhækkanir sem tóku gildi um síðustu áramót er varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu og miða við að hækkun ársins 2024 verði ekki umfram 3,5%. Einnig skuldbindur Akureyrarbær sig til þess að tryggja gjaldfrjálsar skólamáltíðir fyrir nemendur í grunnskólum sveitarfélagsins í samstarfi við ríkisvaldið og með fyrirliggjandi kostnaðarþátttöku þess, frá og með ágúst 2024 til loka samningstímans

Þá mun Akureyrarbær tryggja í húsnæðisáætlunum sínum og skipulagi nægt framboð byggingarsvæða og lóðir til skemmri og lengri tíma og hlutdeild í stofnkostnaði almennra íbúða, sem og að halda áfram því verkefni að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla".

Hilda Jana Gísladóttir Samfylkingu og Sunna Hlín Jóhannesdóttir Framsóknarflokki, sendu frá sér grein í gær um stöðu mála hjá bænum, grein sem finna má að vef Vikublaðsins.  Í áðurnefndri grein hvetja þær meirihluta bæjarstjórnar til þess að hækka ekki gjaldskrár um meira en 3,5% eins og um var samið við gerð kjarasamninga í vor s.l.

M.v samþykkt  bæjarráðs í morgun er ljóst að svo muni verða.

 

Nýjast