Zontaklúbburinn Þórunn Hyrna fagnar 40 árum

Deiglan. Mynd: Gilfélagið-Deiglan/Facebook
Deiglan. Mynd: Gilfélagið-Deiglan/Facebook

 Í tilefni af 40 ára afmæli Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu fer fram afmælishóf og listaverkauppboð í Deiglunni, Listagilinu, laugardaginn 5. október, kl. 15:00. 

 Í hófinu verður  Helena Eyjólfsdóttir, stofnfélagi klúbbsins, heiðruð. Stiklað verður á stóru í sögu klúbbsins og í kjölfarið verður haldið listaverkauppboðið LIST STYÐUR LIST, undir stjórn Villa vandræðaskálds. Þá verður boðið upp á tónlistaratriði og léttar veitingar.

Deiglan opnar kl 14.00 með forsýningu á listaverkunum, en dagskrá hefst kl. 15.00. 

Í tilkynningu segir að hugmyndin að uppboðinu hafi verið listaverkagjöf til klúbbsins. Allur ágóði af uppboðinu rennur í sjóð til að styðja konur til listnáms og/eða listsköpunar. Verkefnið og styrktarsjóðurinn fékk nafnið LIST STYÐUR LIST.

Listaverkin eru til sýnis á facebook og instagram, þar sem áhugasamir geta boðið í verkin. Heitið á síðunni á facebook þar sem  listaverkin eru til sýnis er: Listaverkauppboð Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu. Í október verður auglýst eftir umsóknum um styrki og fer úthlutun fram í tengslum við 16 daga átak Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi sem stendur frá 25. nóvember til 10. desember n.k.

Leggja áherslu á valdeflingu ungra kvenna

Zontahreyfingin vinnur að því að bæta stöðu og lífsgæði kvenna hvar sem er í heiminum, bæði á eigin vegum og í samstarfi við stofnanir Sameinuðu þjóðanna og frjáls félagasamtök. Zonta leggur sérstaka áherslu á valdeflingu ungra stúlkna og kvenna m.a. með því að styðja þær til náms og veita þeim þannig brautargengi til aukinna tækifæra og áhrifa í samfélaginu. 

Zontaklúbbar vinna að þessum markmiðum með því að safna fjármunum sem renna bæði til verkefna innanlands og utan. Dæmi um innlend styrktarverkefni Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu eru: Aflið/Samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, Bjarmahlíð/miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Kvennaathvarfið, Rauði krossinn og Velferðarsjóður Eyjafjarðar. Ennfremur hefur klúbburinn styrkt einstæðar mæður til sumardvalar með börnum sínum.

 

Nýjast