Yfirgnæfandi líkur á að jólin í ár verði hvít
Hvít jól, rauð jól, þessi hugsun er rík meðal fólks á þessum árstíma. Til þess að fá svar við þessum vangaveltum höfðum við samband við Óla Þór Árnason, Ströndung og veðurfræðing á Veðurstofu Íslands.
Óli Þór Árnason veðurfræðingur
,,Ef við tökum þetta í réttri röð þá verður dagurinn í dag og á morgun þriðjudag, meinhægir og hiti líklega undir frostmarki. Gæti snjóað um mest allt norðanvert landið á miðvikudag og þegar líður á daginn verður vindáttin orðin norðlæg og eins og flestir vita þá þýðir það á þessum árstíma að hitinn fer ekki yfir frostmark og von er á meiri snjó.
Sem virðist ætla að halda sér fram yfir jól og því eru yfirgnæfandi líkur á að jólin í ár verði hvít."
Getur þú skotið á það hvernig muni viðra um áramót?
,,Þótt enn séu tæpar 2 vikur í áramót benda flesta spár til að norðlægar áttir verði áfram ríkjandi og því meiri líkur en minni að snjó næstu daga taki ekki upp" sagði Óli Þór.