Yfir 30 þátttakendur í fjölskylduratleik Norðurþings

Systkinin Arnar Þór Gunnarsson og Tinna Ásdísardóttir. Mynd fengin af vef Norðurþings.
Systkinin Arnar Þór Gunnarsson og Tinna Ásdísardóttir. Mynd fengin af vef Norðurþings.

Ratleikur Norðurþings var haldinn í fimmta sinn á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Greint er frá þessu á vef sveitarfélagsins.

Settir voru upp skemmtilegir fjölskylduratleikir á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn. Yfir þrjátíu þátttakendur tóku þátt og skiluðu þeir svörum inn rafrænt.

Í gær föstudag var dregið úr pottinum en sigurvegarar ratleiksins í ár eru systkinin Arnar Þór Gunnarsson og Tinna Ásdísardóttir sem búa á Húsavík.

 Í verðlaun fengu þau gjafabréf í Pizza-kofann á Húsavík.

Nýjast