Vísindaskóli unga fólksins haldin í fjórða sinn
Vísindaskóla unga fólksins verður haldinn í fjórða skiptið dagana 18.-22. júní. Vísindaskólinn er ætlaður ungu fólki á aldrinum 11-13 ára og í fyrsta sinn er nú hægt að nýta tómstundaávísun við greiðslu skólagjalda. Hámarksfjöldi nemenda er 80 og fer lausum plássum ört fækkandi, er fram kemur í tilkynningu.
Á hverju ári hefur verið boðið upp á ný þemu, sem gerir það að verkum að unga fólkið getur sótt skólann þrjú ár í röð og alltaf kynnst nýjum áherslum. Að þessu sinni eru yfirskriftir þemanna; Með lögum skal land byggja, Lífríkið í bænum, Skapandi hugsun, Vísindi heima í eldhúsi og úti á götu og Fab Lab smiðja. Á bak við þessi heiti liggur fræðsla um hvernig lögreglan starfar og hvað lögreglumenn þurfa að kunna og í hverju þeir lenda í daglegu starfi.
Nemendur rannsaka lífríkið á háskólasvæðinu og finna út úr því hve margar tegundir af plöntum, fléttum og dýrum eru á svæðinu. Þeir kynnast nýsköpun og finna út úr því hvernig hugmyndir verða að veruleika og svo munu þeir kynnast eðlis og efnafræði eldhússins og búa til eigið tilraunaeldhús. Nemendur kynnast einnig FAB LAB Akureyri og læra á teikniforrit og hanna og skera út hluti í laserskurðarvél.
„Reynsla fyrri ára hefur sýnt að strákar sýna þessum skóla ekki síður áhuga en stelpur á aldrinum 11-13 ára. Stór hópur þátttakenda hefur komið ár eftir ár í skólann og það erum bestu meðmælin sem við getum fengið“, segir Sigrún Stefánsdóttir, skólastjóri Vísindaskóla unga fólksins. Skólinn byrjar kl. 9.00 á morgnana og stendur fram til kl. 15.00 og fá þátttakendur hádegismat í skólanum.
Frekari upplýsingar má finna inn á heimasíðu Vísindaskólans www.visindaskoli.is.