Vikublaðið kemur út í dag
Vikublaðið kemur út í dag eins og alla fimmtudaga og að vanda er farið um víðan völl í blaði vikunnar.
Meðal efnis:
*Mikil gróska er í Hörgársveit. Íbúum fer ört fjölgandi og ýmsar framkvæmdir í gangi. Horft er til þess að íbúar geti verið orðnir um 900 innan fárra ára og þessari fjölgun þarf að mæta með uppbyggingu innviða. Snorri Finnlaugsson hefur verið sveitarstjóri í Hörgársveit frá árinu 2015 og Vikublaðið ræddi við Snorra um uppganginn í sveitarfélaginu og hann sjálfan.
*Landsmenn hafa undanfarna daga fagnað frelsinu sem fylgir því að vera lausir úr höftum samkomutakmarkana. Húsavíkingar eru þar engin undantekning en á laugardagskvöldið var ríkti gleði og stemning á hafnarsvæði bæjarins.
*Landsmenn allir fagna afléttingum á aðgerðum vegna kórónuveirunnar en einn þeirra er Haukur Tryggvason sem um árabil hefur rekið Græna hattinn á Akureyri. Fjöldi tónleika hafa fallið niður á Græna hattinum vegna heimsfaraldursins en Haukur segir vel bókað nánast allar helgar fram að áramótum.
*Christian Schmidt kemur frá Bremen í Norður-Þýskalandi og er menntaður hagfræðingur. Hann kom upphaflega til Íslands sem ferðamaður og heillaðist af landi og þjóð. Hann dvelur á Húsavík í um níu mánuði á ári og starfar hjá Norðursiglingu. Christian er Norðlendingur vikunnar.
*Á þriðjudag fer fram íbúafundur á Húsavík þar sem kynntar verða mögulegar sviðsmyndir atvinnuuppbyggingar á Bakka. Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings segir aldrei verið jafn margir umræðufletir á mismunandi uppbyggingu mögulegra atvinnutækifæra.
*Sr. Svavar Alfreð Jónsson skrifar bakþanka vikunnar og Anna Hildur Guðmundsdóttir heldur um Áskorandapennann.
*Hjörleifur Valsson, fiðluleikari, stendur fyrir tónleikum ásamt Jónasi Þóri, orgel- og píanóleikara. Þeir verða í Akureyrarkirkju á föstudagskvöldið og í Þorgeirskirkju í Ljósavatnsskarði á laugardaginn. Rætt er við þá félaga í blaðinu.
Smelltu hér til að gerast áskrifandi.