„Við Guð fundum hvort annað aftur“
Sindri Geir Óskarsson er nýr sóknarprestur í Glerárkirkju en hann tók við starfinu af Gunnlaugi Garðarssyni í upphafi árs. Sindri er fæddur árið 1991 og er næstyngsti sóknarprestur landsins. Hann er uppalinn á Akureyri og lauk stúdentsprófi frá MA árið 2010 og mag. theol.,-prófi frá H.Í. árið 2016.
Á meðan hann lagði lokahönd á meistaraverkefni sitt fluttist hann ásamt fjölskyldu sinni til Noregs og starfaði þar sem „prestevikar“ (óvígður afleysingamaður prests), í tæp tvö ár. Undanfarin ár hefur sr. Sindri Geir fengist við kennslu á Akureyri, unnið sem svæðistjóri KFUM & K á Norðurlandi og sem ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun.
Vikudagur tók Sindra tali og forvitnaðist um prestinn unga.
Smelltu hér til að gerast í áskrifandi.