Varist þjóðvegina að óþörfu og forðist gönguferðir í kringum Glerá

Pollurinn á Akureyri haugskítugur útaf af vatnavöxtum.
Pollurinn á Akureyri haugskítugur útaf af vatnavöxtum.
Lögreglan á Norðurlandi eystra biðlar til íbúa að vera ekki á ferðinni á þjóðvegum að óþörfu. Búast má við áframhaldandi vatnavöxtum í ám. Hugsanlegt er að ár geti jafnvel rofið vegi og skemmt brýr. Þá eru íbúar á Akureyri beðnir um að vera ekki á ferðinni á göngustígum og lægðum kringum Glerá.
 
Nú þegar er búið að loka brúnum við Þverá í Eyjafirði og einnig við Möðruvelli, þar sem Eyjafjarðrarbraut eystri og vestri mætast. Sem varúðarráðstöfun eru því íbúar að vera ekki á ferðinni að óþörfu á vegum og sýna aðgát kringum ár og vötn.

Nýjast