Útsýnispallar settir á þak Hofs?

Tölvugerð mynd, svona gæti framkvæmdin litð út.  Myndir  Nordic
Tölvugerð mynd, svona gæti framkvæmdin litð út. Myndir Nordic

Á seinasta fundi Umhverfis og mannvirkjaráðs voru viðraðar hugmyndir sem unnar voru á Nordic  Office of  Architecture hér i bæ um útsýnisstað á þaki Hofs. 

Hugmynd þessi gengur út á það  að smíða þrjá útsýnispalla á þaki Hofs  sem vísuðu þá ef af verður í norður, austur og suður.

Hilda Jana Gísladóttir situr i Umhverfis og mannvirkjaráði og henni þykir þessi hugmynd áhugaverð.:  ,,Mjög vel, mjög spennandi verkefni.  Ég tel að við ættum hiklaust að láta meta kostnaðinn og þá ekki síst rekstarkostnaðinn. Held að þetta gæti orðið mjög flottur útsýnisstaður“  sagði Hilda Jana bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í stuttu samtali við vefinn.

 Horft í suður

Nýjast