Útmáð fortíð því fólk er fífl
Opnun málverka og ljósmyndasýningar undir yfirskriftinni "útmáð fortíð því fólk er fífl" með verkum eftir Magnús Helgason verður þann 10. nóvember nk. kl. 16:00-18:00 á Bókasafni HA. Magnús er fæddur 1977 og lærði myndlist í AKI Hollandi, hann útskrifaðist 2001. Sýningin varir til 15. desember og allir eru hjartanlega velkomnir.
Eftir útskrift lagði Magnús stund á hreyfimyndagerð og tilraunakvikmyndun ásamt málaralistinni. Undanfarin ár hafa málverkin þó verið helsta viðfangsefnið.
Málverkin eru unnin úr fundnum efniviði sem verður á vegi listamannsins og eru þar af leiðandi nokkurskonar úthugsaðar tilviljanir.
Málverkin sem hér eru sýnd eru allt frá því að vera fimm ára gömul til þess að vera splunkuný. Einnig eru til sýnis hversdagslegar ljósmyndatilraunir, en þetta er fyrsta ljósmyndasýning Magnúsar.