Upplýsingmiðstöðin opnuð aftur í Hofi

Upplýsingamiðstöð hefur verið opuð á ný í Hofi á Akureyri. Mynd/ Akureyri.is
Upplýsingamiðstöð hefur verið opuð á ný í Hofi á Akureyri. Mynd/ Akureyri.is

Upplýsingamiðstöðin í Hofi hefur verið opnuð aftur eftir nokkurt hlé. Fyrsta kastið verður opið þar alla virka daga frá kl. 8-16 en í bígerð er að hafa einnig afgreiðslutíma um helgar þegar líður á sumarið. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.

Nýja upplýsingmiðstöðin veitir fyrst og fremst upplýsingar um Akureyri, Grímsey og Hrísey. Þar verða kort og bæklingar um bæinn og eyjarnar tvær en einnig bæklingar sem ná yfir allt Ísland. Ferðaþjónustuaðilum í næsta nágrenni við Akureyri er boðið að koma með bæklinga í upplýsingamiðstöðina en plássið er mjög takmarkað og því verður ekki hægt að bjóða fyrirtækjum í sveitarfélögum sem liggja fjær Akureyri að vera með efni þar.

Það eru Akureyrarhöfn, Menningarfélagið Hof, hönnunar- og gjafavöruverslunin Kista og Akureyrarbær sem hafa tekið höndum saman og standa að rekstri upplýsingamiðstöðvarinnar en ríkið hætti sem kunnugt er stuðningi við reksturinn fyrir um tveim árum og hefur starfsemin legið niðri af þeim sökum.

Nýjast