Unglingar á Húsavík læra um fiskeldi

Unglingar frá Húsavík læra um fiskeldi. Mynd: Norðurþing/Facebook.
Unglingar frá Húsavík læra um fiskeldi. Mynd: Norðurþing/Facebook.
Fiskeldisskóli unga fólksins fór fram í síðustu viku á Húsavík í tengslum við vinnuskólann fyrir krakka í 8. og 9. bekk.
 
Markmið skólans er að kynna sjávarútveg fyrir nemendum og lögð áhersla á fiskeldi enda mikið um fiskeldi í sveitarfélaginu. Kennt var frá mánudegi til fimmtudags fyrir hádegi, boðið var upp á fyrirlestra og farið í heimsóknir í Norðursiglingu, Rifós og Silfurstjörnuna.
 
Sjávarútvegsskólinn hefur verið starfræktur um allt land í nokkur ár en kennt er á Austfjörðum, Ísafirði, Sauðárkróki, Snæfellsnesi, Reykjavík og Höfn í Hornafirði. Fiskeldisskólinn er svo á Húsavík og í Þorlákshöfn og eru kennarar sjávarútvegsfræðingar.
 

Nýjast