Umhverfis- og atvinnumálanefnd Svalbarðsstrandarhrepps Fossbrekka og Safnasafnið hlutu umhverfisverðlaun
Umhverfis- og atvinnumálanefnd Svalbarðsstrandarhrepps hefur veitt umhverfisviðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir í sveitarfélaginu. Ákveðið var að veita annars vegar fyrirtæki og hins vegar lóð einstaklinga viðurkenningu að þessu sinni. Sveitarstjóri og formaður Umhverfis- og atvinnumálanefndar afhentu viðurkenningar.
Gígja Kjartansdóttir Kvam og Roar Kvam í Fossbrekku hlutu umhverfisviðurkenningu Svalbarðsstrandarhrepps fyrir snyrtimennsku, fallega og vel hirta lóð. „Það er alltaf snyrtilegt heim að líta í Fossbrekku, byggingum vel við haldið og ræktarlegur trjágróður myndar fallega og stílhreina umgjörð um garðinn og heimilið,“ segir í umsögn um Fossbrekku á vefsíðu Svalbarðsstrandahrepps.
Níels Hafstein og Magnhildur Sigurðardóttir hlutu viðurkenningu fyrir Safnasafnið. „Umgjörð og aðkoma að safninu og umhverfi þess er snyrtileg, húsakosti vel við haldið, sem og lóð og garði. Listaverk og gróður setja skemmtilegan stíl á umhverfið og ramma inn starfsemi safnsins.“
Níels Hafstein og Magnhildur Sigurðardóttir á Safnasafninu með Þórunni og Elísabetu.