Tvö ný fræðsluskilti í Grímsey

Mynd: Akureyri.is/Magnús Bjarnason.
Mynd: Akureyri.is/Magnús Bjarnason.

Í vikunni voru sett upp tvö skilti í Grímsey tengd Norðurstrandarleiðinni (e. Arctic Coast Way) sem greina annarsvegar frá eðli heimskautsbauganna og hinsvegar sögu Grímseyjar. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.

Grímsey er hluti af Norðurstrandarleiðinni, sem er heillandi leið utan alfaraleiðar þar sem ferðast er meðfram strandlengju Norðurlands. Samtals er leiðin um 900 kílómetra löng. Á leiðinni eru fjölmargir bæir/þorp og auk þess fjórar eyjar, sem auðveldlega er að hægt að komast út í með bát eða ferju.

Skiltin má finna á flugstöðinni í Grímsey og í ágúst koma tvö sambærileg skilti á hafnarsvæðið til að auðvelda gestum eyjarinnar að fræðast um þennan merka stað.

Hægt er að skoða skiltin og fleiri skilti sem finna má í Grímsey hér.

Einnig er hægt að fræðast frekar um Norðurstrandarleiðina hér.


Athugasemdir

Nýjast