Tryggjum öryggi Reykjavíkurflugvallar

Gunnar Már Gunnarsson og Sunna Hlín Jóhannesdóttir bæjarfulltrúar Framsóknar á Akureyri    Mynd aðse…
Gunnar Már Gunnarsson og Sunna Hlín Jóhannesdóttir bæjarfulltrúar Framsóknar á Akureyri Mynd aðsend

Okkur berst til eyrna að loka eigi annarri af tveimur eftirstandandi flugbrautum Reykjavíkurflugvallar. Veruleg skerðing, með öðrum orðum, á bæði flugöryggi og nýtingarmöguleikum flugvallarins. Á sama tíma heyrum við að vel gæti þurft að loka hinni brautinni - í lengri eða skemmri tíma - meðan unnið er að uppbyggingu nýrrar brúar yfir Fossvoginn. Af hverju er það svo, að við þurfum trekk í trekk að minna á þá staðreynd að flugsamgöngur til og frá höfuðborgarinnar eru hryggjarstykkið í byggðaþróun og byggðastefnu landsins?

Sitjum ekki hljóð hjá

Við á landsbyggðunum getum ekki setið hljóð hjá. Það er gríðarlegt hagsmunamál fyrir okkur að tryggja rekstur og öryggi flugvallarins á meðan í gildi er samkomulag um að hann verði áfram í Vatnsmýrinni, enda enginn annar augljós kostur í sjónmáli. Innanlandsflugið er mikilvægur þáttur í uppbyggingu atvinnulífs á landsbyggðunum, bætir almenn lífsgæði og er nauðsynlegt öryggi okkar og heilsu. Þess vegna verðum við að þrýsta á alla hlutaðeigendi aðila að leysa þennan hnút strax. Nóg hefur verið saumað að flugvellinum í gegnum tíðina.

Áskorun til allra hlutaðeigenda

Bæjarfulltrúar Framsóknar hafa óskað eftir umræðu um stöðu Reykjavíkurflugvelli á bæjarstjórnarfundi og hyggjast leggja þar fram eftirfarandi bókun til samþykktar:

Bæjarstjórn Akureyrar skorar á bæði Reykjavíkurborg og Samgöngustofu, sem og ráðuneyti samgangna, að tryggja öryggi og rekstur Reykjavíkurflugvallar. Sú óvissa sem er uppi vegna fyrirhugaðrar lokunar á annarri tveggja flugbrauta er ólíðandi. Því ættu málsaðilar ekki að bíða boðanna heldur leiða öll ágreiningsefni skjótt til lykta, svo sem eðli málsins og alvarleiki býður.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nýjast