Trjáganga á Akureyri

Skógræktarfélag Eyfirðinga býður upp á Trjágöngu um Akureyri á morgun, fimmtudag kl. 19. Gangan hefst og endar á Ráðhústorgi og felur í sér að rölta rólega um bæinn og skoða græn svæði og merk tré. Gangan tekur um 60-90 mínútur og öll eru velkomin!

Ingi Jóhannsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins mun setja viðburðinn með stuttu opnunarávarpi, Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála hjá Akureyrarbæ segir nokkur orð áður en Bergsveinn Þórsson starfsmaður Skógræktarfélagsins leiðir hópinn af stað í trjágönguna.

Að göngu lokinni mun Skógræktarfélagið bjóða upp á brakandi heitt ketilkaffi og djús og þátttakendur geta notið og spjallað.


Athugasemdir

Nýjast