Þór/KA klárar tímabilið á Greifavellinum

Greifavöllurinn verður vettvangur fyrir heimaleiki Þór/KA í úrslitakeppni Bestu deildar kvenna nú í …
Greifavöllurinn verður vettvangur fyrir heimaleiki Þór/KA í úrslitakeppni Bestu deildar kvenna nú í haust. Mynd gn

Þór/KA mun spila heimaleiki sína í efri hluta Bestu deildar kvenna á Greifavellinum, heimavelli KA.  Þetta kemur fram í frétt á vefsíðunni  fotbolti.net  í dag.    Liðið hefur leikið heimaleiki sína á VÍS vellinum sem er heimavöllur  þeirra  og  karlaliðs Þórs en ástand vallaris er ekki gott  og eftir erfiða tíð s.l. daga er þetta niðurstaðan enda alltaf  keppikefli að leika við sem bestar aðstæður hverju sinni.

Í viðtali við áðurnefnda vefsíðu segir  Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þór /KA meðal annars.

„Þetta hefur verið í skoðun í sumar þar sem VÍS-völlurinn kom bara ekki vel undan vetri. Þó að það hafi sennilega aldrei verið unnið jafnmikið í honum, þá er bara of mikið álag á honum að hafa tvö meistaraflokkslið að keppa á honum

 Þetta er búið að vera í umræðunni í sumar, og eftir þessa veðurótíð að undanförnu, þá var þessi ákvörðun tekin. Grassvæðin sem liðin (Þór og Þór/KA) hafa til að æfa á eru líka búin að vera mjög slæm. Liðin hafa þurft að æfa og keppa á þessum eina velli. Það var bara ekki orðið hægt. Völlurinn er bara orðinn mjög slæmur." 

Viðtalið á fotbolti.net má  í heild lesa með því að smella á slóðina hér fyrir neðan.

https://www.fotbolti.net/news/27-08-2024/thor-ka-klarar-timabilid-a-greifavellinum

 

 

 

 

 


Athugasemdir

Nýjast