Þórhallur gefur kost á sér í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Þórhallur Jónsson hefur verið bæjarfulltrúi og setið í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn undanfa…
Þórhallur Jónsson hefur verið bæjarfulltrúi og setið í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn undanfarin fjögur ár. Síðastliðið ár hefur hann gengt formennsku í skipulagsráði Akureyrarbæjar

Þórhallur Jónssn hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Undanfarin fjögur ár hefur Þórhallur verið bæjarfulltrúi og setið í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hann hefur mikinn áhuga á uppbyggingu Akureyrar sem höfuðstað Norðurlands. Síðastliðið ár hefur hann gengt formennsku í skipulagsráði Akureyrarbæjar.

 

„Skipulags- og atvinnumál eru mér sérstaklega hjartfólgin og ég tel að við eigum mikið sóknarfæri á þeim sviðum á næstu árum til að gera góðan bæ betri. Framtíð Akureyrar er björt og mikil fólksfjölgun varð í bænum á síðasta ári, talsvert meira en árin þar á undan. Það helst í hendur við þá staðreynd að uppbygging íbúða á síðastliðnu ári er sú mesta í áraraðir,“ segir Þórhallur í pistli.

 

„Fyrirtækjum er að fjölga og mörg fyrirtæki eru að byggja og stækka við sig. Samþykkt nýs miðbæjarskipulags hefur ýtt úr vör nýbyggingu verslunarrýmis í miðbænum. Austurbrú við Drottningabraut er í byggingu og verður stórglæsileg íbúabyggð miðsvæðis. Ný millilandaflugstöð er að fara af stað í byggingu ásamt því að tvær nýjar Heilsugæslustöðvar verða teknar í notkun á árunum ´23 og ´24. Nýtt öldrunarheimili er að fara í byggingu og svo er stækkun sjúkrahússins í sjónmáli. Gatnagerð er hafin í nýju Holtahverfi og nýtt skipulag fyrir vistvænt Móahverfi fyrir um 3000 íbúa er að klárast. Allt er þetta mikil framfararskref sem ég er stoltur af að hafa átt þátt í.

 

Í nýju Holtahverfi eru lóðir fyrir íbúðir ætlaðar eldri borgurum og einnig er gert ráð fyrir slíkum íbúðum með félagsmiðstöð í nýju Móahverfi í nálægð við torg og þjónustubyggingar. Í þessu nýja hverfi er einnig gert ráð fyrir þjónustukjarna, sleðabrekku, kálgarði og íþróttasvæði.

 

Með auknu aðgengi að raforku á svæðinu skapast ný og fleiri atvinnutækifæri og enn betri búsetuskilyrði. Sem Akureyringur veit ég að það er hvergi betra að búa, stutt er í alla þjónustu, aðstaða til útivistar og íþróttaiðkunar er til fyrirmyndar og auðvelt að komast hratt og vel milli bæjarhluta. Akureyri er og á að vera meira en bara bær, við erum miðstöð þjónustu og afþreyingar fyrir stóran hluta landsins. Í því forystuhlutverki liggja okkar stærstu tækifæri en því fylgir jafnframt ábyrgð.

 

Ég tel að með því að vera opin fyrir nýjungum og með trú á einstaklingum og frumkvæði getum við aukið atvinnutækifæri og bætt samfélagið okkar til framtíðar," segir Þórhallur sem óskar eftir stuðningi í annað til þriðja sæti listans.

Nýjast