Sýningin Tónlistarbærinn Akureyri opnuð í Minjasafninu
Sýningin Tónlistarbærinn Akureyri verður opnuð í Minjasafninu á Akureyri laugardaginn 13. júní klukkan 14:00. Í tilkynningu segir að tónlist hafi verið í hávegum höfð á Akureyri allt frá síðari hluta 19. aldar og standi í miklum blóma um þessar mundir. Norðursal Minjasafnsins hefur verið breytt í óræðan skemmtistað þar sem sjá má fjölmarga áhugaverða gripi úr tónlistarsögu bæjarins.
Gestir safnsins geta tyllt sér niður, fengið sér kaffisopa og hlustað á tónlist eða kynnt sér söguna með því að glugga í 72 síðna blað um Tónlistarbæinn Akureyri. Í blaðinu er fjallað um allt milli himins og jarðar; stiklað á stóru í tónlistarsögu bæjarins en þó farið ítarlega í fjölmargt.
- Magnús Einarsson, fyrsti organisti á Akureyri, var ómenntaður alþýðumaður með óbilandi áhuga og ást á tónlist. Hann heyrði hornablástur frá ensku herskipi, hafði aldrei komist í slíkt hrifningarástand og ákvað að helga líf sitt tónlist.
- Magnús stofnaði bæði kór og hornaflokk. Karlakór hans, Hekla, var sá fyrsti sem hélt úr landi í söngferð, til Noregs 1905.
- Jóhannes Gísli Vilhelm Þorsteinsson – Jonni í Hamborg – var stjarna í íslensku tónlistarlífi skamman tíma laust fyrir miðja síðustu öld. Hann hélt fyrstu „íslensku“ djasstónleikana.
- Passíukór Roars Kvam flutti fyrstur stórvirkið Messías eftir Händel í heild á Íslandi.
- Lýður Sigtryggsson varð Norðurlandameistari í harmonikuleik árið 1946 með gríðarlegum yfirburðum.
- Jonni í Hamborg var eitt sinn rekinn úr Menntaskólanum fyrir slagsmál á dansleik. Sigurður Guðmundsson skólameistari rak hann „frá og með næsta mánudegi, en [þér] leikið á skóladansleiknum á laugardagskvöldið.“
- Jóhanna Jóhannsdóttir er að öllum líkindum fyrsta íslenska barnastjarnan.
- Jóhann Konráðsson var einn vinsælasti söngvari Íslands um árabil. Rödd hans spratt fram „eins og tær lind,“ sagði Áskell Jónsson söngstjóri.
- Pálmi Stefánsson stofnaði Tónaútgáfuna af illri nauðsyn seint á sjöunda áratug síðustu aldar, því hann fékk ekki leyfi til að selja íslenska tónlist á Akureyri! Pálmi gaf út fjölda hljómplatna.
- Friðgeir Sigurbjörnsson varð að hætta störfum við húsgagnasmíði vegna berkla og varð afkastamikill hljóðfærasmiður.
- Gígja Kjartansdóttir var fyrsti nemendi á pípuorgel á Íslandi.
- Barnakór Akureyrar var fyrsti íslenski barnakórinn sem fór utan í söngferð – til Noregs 1954.
- Strákahljómsveitin Bravó vakti mikla athygli 1965, þegar hún hitaði upp átta sinnum fyrir bresku rokkhljómsveitina Kinks, sem þá var ein sú þekktasta í heimi.
- Kvöld í Sjallanum var kveikjan að tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves.
- Fyrsta danshljómsveit Akureyrar var X-bandið, stofnað 1928. Hljómsveitin lék franska þjóðsönginn fyrir vísindamanninn og landkönnuðinn Jean Charcot, þegar hann sótti Akureyri heim.
- Organistar hafa verið fáir síðan Magnús Einarsson gegndi því starfi fyrstur frá miðjum áttunda áratug nítjándu aldar. Sigurgeir Jónsson frá Stóruvöllum var organisti Akureyrarkirkju í 30 ár og Jakob Tryggvason í 45 ár! Áskell Jónsson var organisti í Lögmannshlíðar- og síðar Glerárkirkju í 42 ár.
- Finnur Eydal spurði unga söngkonu í Reykjavík seint á sjötta áratugnum: Gætirðu hugsað þér að syngja eitt sumar með hljómsveit á Akureyri? Helena Eyjólfsdóttir svaraði játandi ...
- Kristján Jóhannsson, þekktasti tenórsöngvari Íslands síðustu áratugi, kom reglulega fram í þekktustu óperuhúsum heims um langt árabil.
- Vissir þú að tónskáldið og sellóleikarinn Hafliði Hallgrímsson lék sóló inn á hljómplötu fyrir Pink Floyd?
- Forsvarsmenn Karlakórsins Geysis lofuðu árið 1934 að taka upp nafn Heklu, til minningar um Magnús organista, en af því varð ekki.
- Bræðurnir Ingimar og Finnur Eydal hóf báðir barnungir að vinna við tónlist.
- Fyrsti undirleikari kvennakórsins Gígjanna var einungis 14 ára.
- Þegar Akureyrarkirkja í Fjörunni var vígð 1862 var söngurinn svo lélegur að hneyksli þótti. Danski verslunarmaðurinn Bernhard August Steincke tók þá til sinna ráða …