Svalbarðsstrandarhreppur Loka almenningsbókasafni

Svalbarðsströnd
Svalbarðsströnd

 Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur tekið þá ákvörðun að loka almenningsbókasafni en jafnframt að efla skólabókasafnið í sveitarfélaginu.

Bókasafninu verður lokað frá og með 1. nóvember 2024. Sveitarstjórn hefur óskað eftir að hefja samtal við Akureyrarbæ um þjónustusamning við Amtsbókasafnið fyrir íbúa Svalbarðsstrandarhrepps. Með ákvörðun sinni telur sveitarstjórn að verið sé að bæta bókasafnsþjónustu við íbúa sveitarfélagsins.

Nýjast