Styrkir veittir úr listsjóðnum VERÐANDI í fyrsta sinn

Fremri röð frá hægri: Ellý Vala Ármannsdóttir, Margrét Árnadóttir, Helga Kvam, Tinna Björg Traustadó…
Fremri röð frá hægri: Ellý Vala Ármannsdóttir, Margrét Árnadóttir, Helga Kvam, Tinna Björg Traustadóttir, Jón Þorsteinn Reynisson, Jenný Lára Arnórsdóttir, Kristín Sóley Björnsdóttir, Hulda Sif Hermannsdóttir. Efri röð frá hægri: Ásthildur Sturludóttir, Jón Pálmi Óskarsson, Heimir Haraldsson, Unnar Jónsson, Þorleifur Stefán Björnsson, Rafnar Orri Gunnarsson, Helgi Svavarsson.

Veittir voru styrkir í fyrsta sinn úr listsjóðnum VERÐANDI í Menningarhúsinu Hofi á dögunum. Alls bárust 16 umsóknir og 10 verkefni sem fengu brautargengi á þessu fyrsta úthlutunartímabili sem er 4. janúar - 31. júlí í ár. 

Styrkþegarnir tíu munu standa fyrir fjölbreyttum viðburðum í Menningarhúsinu Hofi á þessum tímabili, sem dæmi má nefna Piazolla kvintett tónleikum, dansgjörningi með frumsaminni tónlist, kórtónleikum, útgáfutónleikum, hátíðardagskrá til heiðurs Elísabetu Maríu, jasstónleikum, klassískum tónleikum og popptónleikum ásamt bíótónleikum með lúðrasveit.

„Það var afar ánægjulegt að fá svo fjölbreyttar umsóknir, sjá metnað listafólksins og vilja til að nýta sér aðstöðuna í menningarhúsinu Hofi fyrir þeirra flottu og krefjandi viðburði. Við starfsfólk Menningarfélagsins hlökkum til að taka á móti þeim í hús. Þessir viðburðir munu án efa bæta litum í annars litríkt og fjölbreytt listalíf hér á Akureyri og vonandi verða mörgum til gleði og stuðnings til að láta drauma sína rætast,“ segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri Menningarfélas Akureyrar og verkefnastjóri Verðanda.

Megintilgangur sjóðsins er að styrkja listafólk til að nýta Menningarhúsið Hof og Samkomuhúsið sem vettvang fyrir listsköpun sína. Listsjóðurinn á að auðvelda ungu listafólki og þeim sem starfa utan stofnana að nýta sér þá fyrirmyndaraðstöðu sem húsakynni Menningarfélags Akureyrar búa yfir, auk þess að stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum og nýta þá möguleika sem þar eru fyrir fjölbreytta viðburði.

Listsjóðurinn VERÐANDI varð til formlega 15. nóvember á síðasta ári þegar Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, Þórleifur Stefán Björnsson, formaður stjórnar Menningarfélagsins Hofs, og Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar, undirrituðu samkomulag um stofnun hans. Auglýst verður aftur eftir umsóknum í Listjóðinn Verðandi í mars næstkomandi fyrir tímabilið 1. ágúst 2019 til loka júlí 2020.

Nýjast