20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Standa vörð um barnafjölskyldur og tekjulægri hópa
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2024 var lögð fram í bæjarstjórn þriðjudaginn 31. október. Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs, kynnti áætlunina og sagði meðal annars að sveitarfélagið stæði frammi fyrir miklum áskorunum þar sem umtalsverð óvissa ríkti í efnahagsmálum landsins og ástandið í heimsmálunum flækti einnig myndina. Megináhersla væri lögð á að standa vörð um hagsmuni barnafjölskyldna, tekjulægri hópa og eldri borgara, ásamt því að leggja áherslu á lýðheilsu bæjarbúa með bættri aðstöðu og metnaðarfullri lýðheilsustefnu.
„Við komum til móts við barnafjölskyldur með tekjutengdum leikskóla- og frístundagjöldum. Einnig bjóðum við upp á sex gjaldfrjálsar klukkustundir sem er tilraunaverkefni en lagt verður mat á kosti þess og galla a.m.k. tvisvar sinnum á árinu 2024,“ sagði Heimir Örn.
Í áætluninni er gert ráð fyrir að rekstrarafkoma A- og B-hluta samstæðunnar verði jákvæð um 530 milljónir eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum en um 66% útgjalda í A-hluta eru vegna fræðslu- og uppeldismála og félagsþjónustu. Fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem eru að hálfu eða meirihluta í eigu sveitarfélagsins falla hins vegar undir B-hluta en þar er til að mynda átt við Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorku, bifreiðastæðasjóð, Hlíðarfjall og félagslegar íbúðir. Jákvæð niðurstaða reksturs B-hluta vegur upp á móti kostnaði við A-hlutann og því er heildarniðurstaðan jákvæð um 530 milljónir króna.
Framkvæmdir ársins 2024 eru áætlaðar alls rúmir 5,3 milljarðar króna sem skiptast nokkuð jafnt milli A- og B-hluta. Framkvæmt verður fyrir um 565 milljónir króna í skóla- og fræðslumálum og 943 milljónir í málaflokki æskulýðs- og íþróttamála. Í eignasjóði gatna er gert ráð fyrir ríflega 1,2 milljarði króna í framkvæmdir en áætluð gatnagerðargjöld ársins sem koma til lækkunar verða um 800 milljónir króna. Eins og áður eru helstu framkvæmdir B-hluta fyrirtækja hjá Norðurorku um 1,9 milljarða og hjá Hafnasamlagi Norðurlands um 429 milljónir króna.
"Rekstur sveitarfélagsins er viðamikill og á köflum þungur þrátt fyrir gríðarlegt aðhald á öllum sviðum. Það eru blikur eru á lofti í efnahagsmálum þjóðarinnar og töluverð óvissa um útlitið fyrir árið 2024 en við gerum það sem við getum til að verja hagsmuni barnafjölskyldna og þeirra sem minna mega sín. Rekstrarafkoma samstæðunnar er áætluð jákvæð um 530 milljónir sem hlýtur að teljast viðunandi í þessu árferði,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri.
Þetta kemur fram á vefsíðu Akureyrarbæjar