Snjóflóð hafa fallið í Hlíðarfjalli

Varað hefur verið við mikilli snjóflóðahættu við Hlíðarfjall á Akureyri næstu daga. Í tilkynningu kemur fram að þrjú snjóflóð hafi fallið úr fjallinu í dag.

„Ástæða er að vara við mikilli snjóflóðahættu á svæði Hlíðarfjalls. Efra svæði er sérstaklega varhugavert! Veikt kristallalag hefur grafist, og gefur snjóþekjan eftir við lítið álag. Nýr vindpakkaður snjór er á svæðinu og þrjú flóð hafa fallið náttúrulega þennan sólarhring. Sól og afbragðsveður er á svæðinu í dag og líklega margir sem hugsa sér hreyfings. Því er full ástæða til viðvörunar. Mikið vúmp er í gegnum alla snjóþekju. Snjóathugunarmenn og ofanflóðasérfræðingar eru að meta stöðuna áfram. Þetta á við um alla útivist, fjallaskíðun og skotveiði. Vandamálið er ekki bundið við Hlíðarfjall og ástæða að fara varlega í öllum snjóþungum bratta,“ segir í tilkynningunni.  

Nýjast