20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Skógræktarfélag Eyfirðinga - Trjágróðri á eldri svæðum verði þyrmt sem kostur er
Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur beint þeirri áskorun til bæjaryfirvalda á Akureyri að betur verði hugað að gróðursetningu trjágróðurs í nýjum og nýlegum hverfum bæjarins, svo sem samsíða akbrautum eða grænum svæðum. Ályktun þessa efnis var samþykkt á stjórnarfundi SE nýverið.
Nútímaskipulag með þéttari íbúðabyggð gerir íbúum oft erfitt um vik að rækta stór tré í görðum sínum líkt og finna má í eldri hverfum. Því hefur mikilvægi þess aukist að hugað sé að skipulagningu trjágróðurs utan hefðbundinna lóðarmarka fasteigna.
Félagið beinir einnig þeirri áskorun til bæjaryfirvalda að við endurskipulagningu eldri svæða sé trjágróðri á vegum bæjarins þyrmt eins og kostur er og gert ráð fyrir nýjum þar sem fórna þarf trjám.
Tré bæta lífsgæði
Tré, einkum stór tré, bæta lífsgæði íbúa í bænum. Þau binda mikið magn kolefnis sem skiptir miklu máli í baráttunni við hamfarahlýnun af mannavöldum. Að auki mynda þau skjól fyrir vindum og draga úr svifryks- og hljóðmengun. Jafnframt er búið að sýna fram á að gróður hefur jákvæð áhrif á sálarlíf manna af öllum kynjum, enda leitar fólk í skóga. Því er mikilvægt, fyrir lýðheilsu og fegurð bæjarins, að bæjaryfirvöld geri trjágróðri hátt undir höfði segir í ályktun SE.
Skógræktarfélag Eyfirðinga er boðið og búið í samvinnu við bæjarfélagið að hlúa að því gróðursæla og hlýlega yfirbragði sem einkennir Akureyri. „Stefnum saman að grænni og gróðursælli borg í norðri,“ segir enn fremur.