Sigmundur Davíð áfram í Norðausturkjördæmi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, verður áfram í framboði fyrir flokkinn í Norðausturkjördæmi. Unnið er að uppstillingu hjá flokknum.
Í svari við fyrirspurn Vikublaðsins staðfesti Hannes Karlsson, framkvæmdastjóri Miðflokksins, að Sigmundur Davíð verði áfram í oddvitasæti listans. Uppstillingarnefnd flokksins er að störfum og von er á niðurstöðum eftir helgi.

Sigmundur Davíð tók fyrst sæti í Norðausturkjördæmi árið 2013 og varð forsætisráðherra í kjölfarið. Hann sat þá fyrir Framsóknarflokkinn. Það gerði það fram til 2017 að hann stofnaði Miðflokkinn.

Austurfrétt og Vikublaðið hafa undanfarna daga unnið að því í sameiningu að ná í þingmenn Norðausturkjördæmisins með fyrirspurnir um hvort þeir hyggist halda áfram og um ástandið í stjórnmálunum.  Ekki hefur enn náðst í Sigmund Davíð, Jakob Frímann Magnússon,  eða Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur 

 Landshlutaráð Viðreisnar í Norðausturkjördæmi fundaði í gærkvöldi og staðfesti að stillt yrði upp á lista flokksins í kjördæminu. Þar var jafnframt valið í uppstillingarnefnd sem hefur hafið störf.

Þá staðfesti Jóhannes Loftsson, formaður Ábyrgrar framtíðar sem bauð fram í Reykjavík í síðustu kosningum, að hreyfingin stefndi að framboði í öllum kjördæmum í ár.

 

Nýjast