20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Síðustu sýningar á Lísu í Undralandi
Síðustu sýningar verða á Lísu í Undralandi, í uppsetningu Leikfélags Verkmenntaskólans á Akureyri, um helgina, nánar tiltekið í dag, föstudaginn 25. mars, kl. 18:00, og á morgun kl. 15:00.
Sýningarnar verða í Gryfjunni í VMA, gengið inn um austurinngang skólans. „Það skal undirstrikað að þetta verða síðustu sýningar á leikritinu og því er eins gott að grípa gæsina og sjá bráðskemmtilega sýningu,“ segir á vef skólans
Lísa í Undralandi var frumsýnd fyrstu helgina í mars og þá voru tvær sýningar á verkinu. Áætlað hafði verið að hafa tvær seinni sýningarnar um helgina 11.-13. mars en af því gat ekki orðið vegna kóvidsmita í leikhópnum. En nú eru sem betur fer allir orðnir frískir og til í slaginn og því skal nú blásið til tveggja seinni sýninga á verkinu, í kvöld og á morgun, sem fyrr segir.