20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Síðasta tónleikahelgi Ljótu hálfvitanna á Græna Hattinum
Hálfvitaárinu 2016 lýkur með hvelli á Græna hattinum á Akureyri um helgina. Þá telja Ljótu hálfvitarnir í tónleikaprógrammið sitt í síðasta sinn þar til næsta vor.
„Allt verður þetta með nokkuð hefðbundnum hætti, enda stöðugleiki krafa dagsins. Góður slatti af útgefnum Hálfvitasmellum verður spilaður eftir því sem tíminn milli kynninga og brandara leyfir. Þetta hefur gefist vel hingað til og engin ástæða til að reikna með að þetta klikki,“ segir í tilkynningu frá hljómsveitinni.
Tónleikarnir verða föstudags- og laugardagskvöld 7. og 8. október og hefjast kl. 22.