20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Samningur um skylduskil
Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra undirrituðu samninginn. Mynd á vefsíðu Akureyrarbæjar.
Undirritaður hefur verið samningur um að menningar- og viðskiptaráðuneytið veiti Akureyrarbæ 30 milljóna króna styrk sem ætlað er að styðja við hlutverk Amtsbókasafnsins sem er ein af skylduskilastofnunum landsins.
Gildistími samningsins er 2023-2025 og greiðir ráðuneytið samkvæmt honum árlega 10 milljónir króna til Akureyrarbæjar vegna skilaskyldu Amtsbókasafnsins, samtals 30 milljónir króna.