Samið við Mýflug um flug til Vestmannaeyja

Samið við Mýflug um svokallað vetrarflug til Vestmannaeyja   Mynd vegagerdin.is
Samið við Mýflug um svokallað vetrarflug til Vestmannaeyja Mynd vegagerdin.is

Vegagerðin hefur samið við Mýflug um áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur des. – feb.

Vegagerðin bauð út flugleiðina Reykjavík – Vestmannaeyjar í júní 2024 og barst eitt tilboð í verkið, frá Mýflugi ehf.  Tilboðið hljóðaði upp á tæpar 108 m.kr. fyrir þriggja ára tímabil.  Um er að ræða flug yfir vetrarmánuðina desember – febrúar og verður flogið fjórar ferðir í viku á milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur.

Flugleiðin er styrkt sérstaklega af ríkinu til að tryggja tímabundna lágmarksþjónustu á þessari leið á meðan markaðslegar forsendur eru ekki til staðar, enda er flugið mikilvægt fyrir íbúa og atvinnulíf á svæðinu.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Vegagerðinni 

 

Nýjast