Samhljómur um mikilvægi beins millilandaflugs

Meðal þess sem rætt var á fundi um framtíð Flugklasans Air 66 var tekjusköpun á svæðinu og lífsgæði …
Meðal þess sem rætt var á fundi um framtíð Flugklasans Air 66 var tekjusköpun á svæðinu og lífsgæði íbúa Mynd á vef MN

Mikill samhljómur er um mikilvægi þess að halda áfram að byggja upp beint millilandaflug um Akureyrarflugvöll auk þess að tryggja áframhaldandi vöxt þess sem komið er. 

Fundur um framtíð Flugklasans Air 66N með fulltrúum sveitarfélaga á Norðurlandi var haldinn nýverið en alls komu 12 fulltrúar frá 7 sveitarfélögum á fundinn auk þess sem fulltrúar frá samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og vestra mættu á fundinn.

Viðræður við sveitarfélögin mun halda áfram, að því er fram kemur á vefsíðu Markaðsstofu Norðurlands,  en markmið fundarins var að fá fram sýn sveitarfélaganna á framhald verkefnisins og ræða næstu skref til að vinna að þeirri sýn. Rætt var um betur skilgreinda aðkomu ríkisins að verkefninu, samstarf innan svæðisins sem og samstarf við ferðaþjónustu og fleiri atvinnugreinar sem hafa hag af auknu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll. Einnig var rætt um tekjusköpun á svæðinu og lífsgæði íbúa.


Athugasemdir

Nýjast