Samherji hl‎ýtur Íslensku sjávarútvegsverðlaunin fyrir „eitt fullkomnasta fiskvinnsluhús heims á Dalvík.“

Frá afheningu verðlaunanna: Fv.: Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir gæðastjóri Samherja, Marianne Rasmussen-C…
Frá afheningu verðlaunanna: Fv.: Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir gæðastjóri Samherja, Marianne Rasmussen-Coulling, framkvæmdastjóri IceFish 2024, Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja / myndir Birgir Ísleifur Gunnarsson/samherji.is

Íslenska sjávarútvegssýningin 2024, Ice Fish 2024, var formlega sett í gær en fjörutíu ár er liðin frá því sýningin var fyrst haldin hér á landi. Að þessu sinni mæta sýnendur frá rúmlega tuttugu þjóðlöndum til að kynna allt það nýjasta og besta í alþjóðlegum sjávarútvegi.

Íslensku sjávarútvegsverðlaunin voru veitt í gærkvöld við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi, en verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi árangur í sjávarútvegi.

„ Samherji reisti eitt fullkomnasta fiskvinnsluhús heims á Dalvík, þar sem fyrirtækið framleiðir hágæða afurðir fyrir alþjóðlega markaði,“ segir í tilkynningu frá Ice Fish um verðlaunin sem afhent voru Samherja.

Verðlaunin undirstrika að vel hefur til tekist

 Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja og Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir gæðastjóri Samherja tóku á móti verðlaununum fyrir hönd Samherja.

„ Við erum afskaplega stolt af þessum verðlaunum. Um þessar mundir eru fjögur ár síðan við hófum vinnslu í nýja húsinu og fullyrðum að um sé að ræða eina fullkomnustu bolfiskvinnslu í heiminum. Búnaðurinn er að mestu íslenskur og hönnun og útfærsla á mörgum þáttum starfseminnar er ný af nálinni. Húsið hefur vakið verðskuldaða athygli víða um heim og þessi verðlaun undirstrika að okkur hefur greinilega tekist vel til,“ segir Gestur Geirsson.

Gestur þakkar fyrir verðlaunin sem Guðbjörg Ósk heldur á.

Öflugt gæðaeftirlit á öllum stigum starfseminnar

„Vinnslan á Dalvík er glæsilegt dæmi um nýsköpun, frumkvöðlastarf og góðan aðbúnað. Allt kapp er lagt á að uppfylla kröfur viðskiptavina og því er fylgst vel með framleiðslunni á öllum stigum. Þessi verðlaun eru kærkomin og sýna vel að við erum framarlega á heimsvísu,“ segir Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir gæðastjóri Samherja.

 Vinnsluhúsið glæsilega á Dalvík

 Það er heimasíða Samherja sem fyrst sagði frá


Athugasemdir

Nýjast