Sameiginleg yfirlýsing Þórs og KA
Vikudagur sagði frá því fyrr í morgun að forráðamenn KA hafi tilkynnt kollegum sínum hjá Þór í gærkvöldi að ákveðið hefði verið að slíta samstarfi félaganna í meistaraflokki karla í handbolta.
Félögin hafa frá árinu 2006 teflt saman fram liði undir merkjum Akureyrar Handboltafélags en nú er ljóst að KA verður með lið í 1. deild á næstu leiktíð. Óljóst er hvort þar verður einnig lið með nafni Þórs eða Akureyrar Handboltafélags, en vilji Þórsara var til þess að halda samstarfinu áfram.
Félögin KA og Þór hafa nú sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu:
Undanfarnar vikur hafa átt sér stað viðræður milli KA og Þórs með milligöngu ÍBA um áframhaldandi samstarf félaganna um rekstur Akureyri handbolta og KA/Þórs í kvennahandbolta.
Félögin hafa skipst á hugmyndum sínum og framtíðarsýn um uppbyggingu handknattleiks á Akureyri og skoðað alla möguleika á frekara samstarfi. Í þeim viðræðum hefur komið í ljós að félögin hafa mismunandi sýn á það hvernig best sé að standa að rekstri, samstarfi og uppbyggingu handboltans á Akureyri.
KA hefur því í framhaldinu ákveðið að ekki sé þörf á frekari viðræðum og samstarfi félaganna um rekstur sameiginlegs liðs undir merkjum Akureyrar handbolta. Félögin útiloka ekki samstarf í rekstri kvennaflokka.
Þór og KA þakka fulltrúum ÍBA fyrir sín störf í viðræðunum og óska hvort öðru velfarnaðar í uppbyggingu og keppni á handboltavellinum næstu árin.
Fyrir hönd félaganna
Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA
Valdimar Pálson framkvæmdastjóri Þórs