Sala áskriftakorta hjá MAk þrefaldast á milli ára

Sala áskriftarkorta, Veislukorti Menningarfélagsins, fyrir viðburðarárið 2017-2018 hjá Menningarfélagi Akureyrar hefur þrefaldast frá síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAk. Þar er haft eftir Önnu Hebu Hreiðarsdóttur verkefnastjóra miðasölu MAk að það sé áberandi hversu ánægt fólk sé með fjölbreytni viðburða og hversu hagstætt veislukortið er. "Hér er því fjör alla daga þegar við opnum," segir Anna Heba.

Sölu veislukortanna lýkur 30. september. Áhugasamir eru því hvattir til að kynna sér veisluborð Menningarfélagsins og úrvalið sem sjá má í bæklingnum eða á heimasíðunni mak.is.

"Þar er hægt að velja sér girnilega viðburði á veislukortið allan sólarhringinn eða á opnunartíma miðasölu í Hofi. Framundan í september eru tveir stórir viðburðir: LA perlur í Hofi, þar sem Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hyllir hið 100 ára gamla Leikfélag og  frumsýning í Samkomuhúsinu á verkinu Kvenfólk, sem er fyrsta uppfærsla Leikfélags Akureyrar á þessu starfsári.  Framundan er drekkhlaðið veisluborð af fjölbreyttum, fjörugum og nærandi viðburðum út viðburðarárið hjá Menningarfélagi Akureyrar," segir ennfremur í tilkynningu.

Nýjast