SAk fær 300 milljónir aukalega

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra heimsótti Sjúkrahúsið á Akureyri í desember. Mynd/ Heilbrigði…
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra heimsótti Sjúkrahúsið á Akureyri í desember. Mynd/ Heilbrigðisráðuneytið

Aðstaða fyrir nýtt sjúkrahúsapótek verður bætt til muna og unnið við lokafrágang og innréttingu á tæplega 600 fermetra húsnæði sem nýttar verða fyrir kennsluaðstöðu og skrifstofur á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Heilbrigðisráðherra hefur veitt SAk auknar fjárheimildir upp á ríflega 300 milljónir króna og verður féð m.a. nýtt í þessi verkefni sem teljast til brýnna framkvæmda á sjúkrahúsinu.

Núverandi aðstæður sjúkrahússapóteksins eru ófullnægjandi og samræmast ekki gildandi stöðlum um slíka starfsemi. Í apótekinu fer m.a. fram blöndun frumubreytandi lyfja við krabbameinum sem gerir ríkar kröfur um aðstæður og skilyrði til að tryggja öryggi starfsfólks og sjúklinga. Síðustu misseri hefur verið unnið að hönnun og útfærslu á nýju sjúkrahússapóteki í samvinnu við erlenda sérfræðinga. Stefnt er að því að ljúka verkinu að mestu á þessu ári með 120 milljóna króna viðbótarfjármagni sem nú hefur verið tryggt til verksins. 

Fyrir fáum árum var reist þakbygging ofan á tengigangi B-álmu sjúkrahússins. Byggingin er rúmir 580 fermetrar en töluvert verk er óunnið svo unnt sé að taka hana í notkun. Mikil tækifæri felast í auknu húsnæði sem gerir t.a.m. kleift að skapa aukið rými fyrir dag- og göngudeildarþjónustu sjúkrahússins sem býr við þröngan kost. Kennsluhlutverk sjúkrahússins hefur aukist umtalsvert undanfarin ár og þörf fyrir aukna aðstöðu að sama skapi. Horft er til þess að nýta nýtt húsnæði undir skrifstofu- og kennsluaðstöðu þar sem rými verður fyrir almenna fræðslu, hermikennslu og aðstaða fyrir Sjúkraflutningaskólann. Aukið framlag vegna þessa verkefnis nemur 187 milljónum króna sem er áætlaður kostnaður við að ljúka framkvæmdum og innrétta húsnæðið. Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Nýjast