Reiknar með að flestir eigendur Búsældar taki tilboði KS

Á vef Austurfréttar er  að finna ítarlega frétt um sölu eigenda Búsældar til KS.  Vefurinn fékk samþykki Gunnars Gunnarssonar ritstj. Austurfréttar  fyrir því að birta úrdrátt úr áðurnefndri frétt hér á  vefnum.

,,Stjórnarformaður Búsældar ehf., sem fer með eignarhlut bænda í kjötiðnaðarfyrirtækinu Kjarnafæði Norðlenska (KN), telur að flestir þeirra selji hlut sinn til Kaupfélags Skagfirðinga (KS), sem í byrjun júlí gerði yfirtökutilboð í félagið. Formaðurinn treystir á að skilyrði í búvörulögum tryggi að kaupin verði bæði bændum og neytendum til hagsbóta.„Miðað við það sem ég hef heyrt frá fólki á ég von á flestir selji sinn hlut,“ segir Gróa Jóhannsdóttir, bóndi að Hlíðarenda í Breiðdal og stjórnarformaður Búsældar.

Þetta kemur fram á vef Austurfréttar í dag. Þar er fjallað um sölu eigenda Búsældar til KS, Kaupfélags Skagfirðinga. Gunnar Gunnarsson ritstjóri gaf góðfúslegt leyfi til birtingar á eftirfarandi útdrætti.

Búsæld er félag rúmlega 460 bænda, mest á Austur- og Norðurlandi, sem áður áttu kjötiðnaðarfyrirtækið Norðlenska sem birtist neytendum helst í gegnum vörumerkið Goða. Eftir að Norðlenska sameinaðist Kjarnafæði árið 2021 varð eign Búsældar í nýju félagið 43%.

Viðbúið að Búsæld verði lögð niður

Í byrjun júlí var tilkynnt um að KS hefði gert tilboð í allt hlutafé Kjarnafæði Norðlenska. Tilboðið fól það í sér að stjórn Búsældar myndi spyrja hvern hluthafa hvort hann vildi selja sinn hlut. Frestur til að svara rann út á sunnudag. Gróa segir að ekki séu öll svör komin enn en væntir þess að þau liggi að mestu fyrir í lok vikunnar. Tíma taki til dæmis að greiða úr málum þar sem eignin sé inni í dánarbúum. Aðspurð sagðist Gróa sjálf ekki vera búin að svara tilboðinu formlega en frekar reikna frekar með að selja.

Nánar aðspurð kveðst hún frekar vænta þess að bændur selji allan sinn hlut frekar en hluta. „Við vitum ekki enn hvað verður um Búsæld. Ef það verða fáir eftir þá verður eignarhluturinn það lítill að hann skiptir engu máli. Þá er líklegt að hún verði lögð niður og einstaklingar eigi beina aðild að félaginu. Þá snýst þetta fyrst og fremst um að fá fundarboð á aðalfund.“

Væntir þess að yfirtakan skili bæði neytendum og bændum ávinningi

Undanþágan frá samkeppnislögunum er ætluð til að auka hag bæði bænda og neytenda en ýmsir hafa efast um að það náðist. Gróa bendir á að í lögunum sé ákvæði um að fyrir lok árs 2028 skuli Alþingi fá skýrslu þriggja óháðra sérfræðinga um árangur lagabreytinganna, sérstaklega hver ávinningur bænda og neytenda hafi verið. 

Óbreytt fyrirkomulag slátrunar í haust

Sauðfjárslátrun hefst hjá bæði Kjarnafæði Norðlenska og KS eftir slétta viku. Yfirtakan kemur það seint að engar breytingar verða á fyrirkomulagi hennar í haust, en sláturhús Norðlenska á Húsavík hefur undanfarin ár verið helsta sauðfjársláturhús Austfirðinga. „Nýir eigendur ákveða hvað gerist næsta haust en stjórnendur KS hafa talað um að reka Kjarnafæði Norðlenska áfram sem sjálfstætt fyrirtæki.“
Sú breyting hefur þó orðið á að Sláturfélag Vopnfirðinga er hætt starfsemi. Aðspurð segist Gróa hafa þær upplýsingar að þeir bændur sem áður slátruðu þar skiptist milli KS og Kjarnafæði Norðlenska."

Greinina i heild má sjá með þvi að smella á slóðina hér fyrir neðan

https://www.austurfrett.is/frettir/reiknar-medh-adh-flestir-eigendur-busaeldar-taki-tilbodhi-ks

 

 

 


Athugasemdir

Nýjast