Rassskelltir fyrir jólafríið
Akureyri tók á móti Fram í gær í lokaleik Olís-deildarinnar í handbolta karla fyrir jólafrí. Fyrir leikinn voru liðin voru jöfn að ásamt Gróttu og Stjörnunni í fjórum neðstu sætunum.
Skemmst er frá því að segja að Aureyringar virtust hreinlega ekki hafa mætt til leiks og Frammarar nýttu sér að og geystust fram úr, staðan í hálfleik var 10-15 Fram í vil.
Akureyringar mættu í seinni hálfleikinn síst skárri en í þann fyrri. Tveir leikmenn þurftu að fara útaf með rauð spjöld og engin taktur í leik liðsins, hvorki í vörn eða sókn. Fram sigraði að lokum 25-34 og stökk þar með upp í 7. sæti með 13 stig. Akureyri rétt hangir fyrir fyrir ofan fallstrikið á markahlutfalli, eru með 11 stig eins og Grótta og Stjarnan. Það má því reikna með harðri og spennandi fallbaráttu á nýja árinu.
Mindaugas Dumcius var markahæstur í liði heimanna með 8 mörk. Arnar Birkir Hálfdánsson fór á kostum fyrir gestina og var markahæstur með 10 mörk.