„Popparinn í mér lifir góðu lífi“
„Ég hef aldrei litið á mig sem sérstaklega mikinn tónlistarmann, kannski frekar sem skemmtikraft og sterka persónu. Enda þarf maður að hafa töluvert til brunns að bera til að vera frontur í vinsælli hljómsveit,“ segir Ragnar.
Ragnar Gunnarsson, líklega best þekktur sem Raggi Sót og hefur um árabil verið ein helsta skrautfjöður íslenska poppheimsins sem söngvari Skriðjöklanna sálugu. Honum er ágætlega líst sem alhliða lífskúnstner, er fæddur í Bryggjuhúsinu á Akureyri og var uppátækjasamur í æsku og fór sínar eigin leiðir. Hann segist hafa róast með árunum og hefur sterkar skoðanir á því sem er að gerast á Akureyri. Popparinn blundar enn í Ragnari þótt böllunum hafi fækkað.
Vikudagur ræddi við Ragga Sót um lífið og tilveruna en nálgast má viðtalið í prentútgáfu blaðsins.