Orlofshúsin í Hálöndum við Akureyri njóta vinsælda
Tvö ný hótelhús hafa verið tekin í notkun í Hálöndum ofan Akureyrar, en þau eru í orlofshúsa byggð sem þar hefur verið að rísa undanfarin rúman áratug. Svæðið er í landi Hlíðarenda við rætur Hlíðarfjalls. Félagið SS-Byggir hefur reist þar orlofshús og nú nýlega bættust tvær hótelbyggingar við.
Helgi Örn Eyþórsson verkefnastjóri hjá SS-Byggi segir að búið sé að afhenda alls 76 hús og eru 5 í byggingu um þessar myndir, öll seld og verða afhent kaupendum á komandi vetri. Húsin á svæðinu eru því orðin í alls 81.
„Það er biðlisti eftir orlofshúsum í Hálöndum. Fyrirtækið getur byggt um það bil 30 hús til viðbótar á því landi sem er í eigu þess á svæðinu,“ segir hann og gerir ekki ráð fyrir öðru en að sú verði raunin. Þannig verða orlofshúsin á svæðinu yfir 100 í allt.
Hótelhús með 54 herbergjum
Í Hálöndum hefur fyrirtækið einnig byggt tvær glæsilegar hótelbyggingar með samtals 54 herbergjum. Þau eru rekin undir nafninu Hótel Hálönd og eru nú bæði komin í fullan rekstur. Írena Elínbjört Sædísardóttir hótelstjóri segir að bókunarstaða sé góð.
Herbergin eru fallega innréttuð og við hvert þeirra eru svalir eða sólpallur. Í kjallara er aðstaða fyrir skíði og reiðhjól, þurrkskápar og þvottaaðstaða fyrir þá sem stunda útivist .
Útsýnið er ekki af lakara taginu